þriðjudagur, 29. maí 2007

Franskur matur og vín allan daginn út og inn

Á föstudaginn þar síðasta fór ég á vínsmökkunarnámskeið í skólanum. Var reyndar svo óheppin að fyrrverandi kennari minn hin ógurlega Jetty eins og ég kallaði hana (raunverulegt nafn Tessy) sá um námskeiðið. Eins og áður talaði Tessy mjög hratt og mikið en það er greinilegt að vín er mikil ástríða hjá henni því hún gjörsamlega ljómaði af gleði yfir þessari kennslustund og missti sig stundum í óvæntum hlátursrokum af engu augljósu tilefni. Hún var líka svona daginn sem hún ákvað að kynna bekkinn minn fyrir franskri tónlist, þessa viku sem hún kenndi mér. Þá fékk hún alveg óvænta vítamínssprautu í rassinn og tók heilu aríurnar fyrir okkur þess á milli sem hún trommaði á borðin af mikilli list.

Eftir vínsmökkunina fór ég ásamt Jelenu, Libi og Chuck í grillveislu hjá Breez og fimm vinum hans í Nice. Það var ótrúlegt fjör ekki síst vegna þess að loksins fékk maður tækifæri á að eyða heilu kvöldi í frönskum félagsskap og fá smá innsýn í líf franskra ungmenna, hljómar eins og ég sé að gera dýralífsþátt! Allt matarboðið var mjög afslappað, maður er vanur því hér heima að þegar maður mætir í grillveislu þá er gestgjafinn þegar kominn út á svalir að grilla og búið er að leggja á borð og svo framvegis. Um slíkt var ekki að ræða í þessu tilviki enda frakkarnir almennt mun afslappaðari en gengur og gerist. Við mættum um hálf níu leytið og héldum að við værum allt of sein, vinir hans voru þá hins vegar ekki einu sinn mættir og gestgjafinn var hvorki byrjaður að matreiða né leggja á borð. Þegar vinir hans komu klukkutíma seinna var byrjað á því að setjast út í garð og opna allar flöskur sem til voru í húsinu. Fólk sat síðan og drakk í um klukkutíma áður en gestgjafinn hafði rænu á að muna eftir grillmatnum. Þá hins vegar uppgötvaði hann að hann hafði gleymt kjötinu heima hjá vini sínum svo það tók góðan klukkutíma í viðbót að ná í kjötið. Á meðan sat fólk bara í rólegheitunum og drakk, enginn fór á fætur til að skera niður salatið eða undirbúa fyrir grillið fyrr en maturinn var kominn í hús. Þá byrjaði hins vegar alvöru grillveisla, reyndar var klukkan orðin vel yfir ellefu en enginn virtist kippa sér upp við það. Í fyrstu byrjaði Breez að grilla tvær gerðir af pylsum sem litu meira út eins og bjúgur. Eftir pylsuátið var grillað lambafile með rosalega góðri hvítlauksdressingu, með matnum var síðan borið fram salat með pasta í!!! Ég hélt að máltíðinni væri lokið eftir lambafile-ið en þá tók gestgjafinn sig til og fór að grilla nautabuff, svo við fengum að smakka þrenns konar grillkjöt. Þegar ég segi smakka þá er það vegna þess að hver og einn fékk ekki stóra sneið heldur í raun smá smakk svo maður hefði pláss fyrir alla réttina. Frakkarnir kunna sitt fag, heima hefði verið allt of mikið af kjöti og maður væri sprunginn eftir fyrsta eða annan réttinn. Eftir máltíðina sat fólkið í rólegheitunum og drakk en aldrei sá ég frakkana þó verða ölvaða, held að þeir hafi öðruvísi þol fyrir víni en annað fólk enda alin upp við vín frá pela.

Á laugardaginn þar síðasta fór ég síðan á matreiðslunámskeið heima hjá hinni frönsku Nicole. Ég held að þetta hafi verið skemmtilegasti matreiðslutíminn til þessa. Við mættum þangað níu um morguninn og elduðum þriggja rétta máltíð alveg frá grunni. Síðan héldum við ekta franskt matarboð í hádeginu og buðum tveim vinum Nicole og manninum hennar. Ég eiginlega verð að lýsa því hvernig alvöru franskt matarboð fer fram því það er í svo mörgum stigum. Í byrjun settumst við út í garð og fengum apperatifs sem var í þessu tilviki kældur áfengur ávaxtadrykkur. Því næst settumst við við matarborðið og fengum Pissaladiére sem entrée en það er hefðbundin forréttur hér í Suður Frakklandi. Pissaladiére er í rauninni hálfgerð pizza með miklum lauk, ólívum, sardínum og olíu. Mér finnst þetta mjög gott en það eru ekki allir sem kunna að meta sterka bragðið af sardínunum. Eftir forréttinn fengum við aðalrétt sem samanstóð af grilluðum kjúklingi og grænmeti sem búið var að raða upp eftir kúnstarinnar reglum með osti, olíu og ýmsum kryddum á milli. Eftir aðalréttinn var salatið borið fram, sem mér fannst mjög furðulegt þar sem við erum vön að borða salatið á undan eða með aðalréttinum? Þegar salatið var búið fengum við eftirréttinn en það var ótrúlega góð frönsk súkkulaðiterta með sultu, reyndar sultunni sem við bjuggum til í síðustu viku. Eftir máltíðina fengum við síðan kaffi og staup af Lemonchada sem er hefðbundin miðjarðarhafsdrykkur gerður úr sítrónum. Með máltíðinni drukkum við hins vegar rauðvín og vatn svo það var ansi mikið um áfengi miðað við að þetta var hádegismatur. En þar sem frakkarnir kunna að umgangast áfengi þá var auðvitað aðeins dreypt á því í hófi. Máltíðin var í alla staði alveg frábær og það er ekki skrítð að frakkarnir eru flestir grannir og í góðu formi. Þeir borða mjög skynsamlega og taka sér góðan tíma við matarborðið. Vegna þessa leið manni aldrei eins og maður væri að springa eftir átið heldur var maður mjög þægilega saddur og frískur eftir máltíðina. Ég held að við ættum að koma þessum sið á heima á íslandi, reyndar er verst að við fáum ekki nær tveggja tíma hádegishlé líkt og frakkarnir svo okkar máltíðir eru óhjákvæmilega alltaf á hlaupum. Eftir erfiðan dag við eldavélina fór ég með Jelenu til Nice í tilraun til að kaupa kjól fyrir brúðkaupið hennar systur minnar. Ég æddi um alla Nice en einhverra hluta vegna endaði ég með að kaupa flest allt annað en kjól fyrir þetta sérstaka tilefni. Eftir langan og strangan dag við innkaup (úff hvað ég lifi erfiðu lífi hér í Frakklandi) settumst ég og Jelena niður og hlustuðum á Reggí/rapp útitónleika á frönsku, sem var mjög forvitnilegt. Hér í Frakklandi er mikið í tísku núna að hlusta á Reggí tónlist og klæða sig eins og útúrreyktur rastafari. Flest allir unglingarnir eru með drella og alls kyns vefnað í hárinu og spila sig sem miklar listatýpur. Þetta er reyndar þægileg tíska ef maður spáir í því, maður getur bara skellt sér í of stóra skyrtu og litríkar buxur og hætt að hugsa um persónulegt hreinlæti. Það myndi allavega spara manni mikinn tíma á morgnanna.

Á mánudaginn þar síðasta skellti ég mér svo til Cannes eftir skóla en eins og flestir vita þá er verið að halda kvikmyndahátíðina í Cannes núna. Ég mætti þar Jelenu, Alex, Libi og Chuck en fékk hálfgerða minnimáttarkennd um leið og ég steig út úr lestarstöðinni. Allir virtust klæddir í síðkjóla eða smóking og skipti ekki máli hvort það væru stjörnur eða bara meðalljónin að reyna að upplifa sig sem eina slíka. Ég sá í byrjun ekki neinar stjörnur, einhver smástirni og fyrirsætur sem maður veit ekki einu sinni nöfnin á en ljósmyndararnir eltu á röndum engu að síður. Hins vegar var verið að frumsýna myndina A Mighty Heart á rauða dreglinum, en hinn ofurmyndarlegi Brad Pitt framleiðir myndina og hin ofurfallega Angelina Jolie leikur eitt aðalhlutverkið. Haldið þið ekki að frökenin litla frá Íslandi hafi ekki bara séð Pittinn og skvísuna hans með eigin augum þegar þau komu út af frumsýningunni. Ég get nú alveg vottað fyrir það að Brad Pitt er alveg jafn myndarlegur í raunveruleikanum og á hvíta tjaldinu, flestar konurnar þurftu að hemja sig svo þær færu ekki að froðufella. Reyndar byrjuðu margir að kalla einhvað um leið og hjónaleysin stigu út úr Le Grand Auditorium á leið sinni í bílinn. Ég hélt í fyrstu að það væri að kalla Brad Pitt á mjög bjagaðri ensku en fattaði síðan seinna meir að fólkið var að kyrja ,,On feet,, sem átti að hvetja stjörnurnar til að ganga götuna í stað þess að keyra hana. Ég skil hins vegar stjörnurnar mjög vel að leggja ekki í það þar sem papparassarnir voru eins mý á skít. Geðveikin var slík að lögreglan réði ekkert við aðstæður og frétti ég að Angelina hefði ekki verið ánægð með skipulagið umrætt kvöld. Hún tók víst einhvað frekjukast á rauða dreglinum en ég var víst of langt í burtu til að fá slíkt drama beint í æð. Ég sá einnig Mickey Rourke (held hann heiti það) en greyið gaurinn lítur út eins og strekkt skinn sem hefur verið of lengi í sólinni. Held að hann hefði aðeins átt að slappa af eftir fyrstu 50 lýtaaðgerðirnar. Eftir allt stjörnufarganið fórum við síðan á ströndina en þar var búið að setja upp stóran kvikmyndaskjá og verið var að sýna gamlan vestra með John Wayne. Við sátum því þar í rólegheitunum og dreyptum á rósavíni meðan fína fólkið keyrði um í limósíum með lífverði, lögreglumenn og ljósmyndara sem fylgdust með hverju skrefi þeirra. Eftir að hafa séð geðveikina í kringum þessar stórstjörnur er ég nú bara ánægð með að vera óþekkt núll á lítilli eyju í ballarhafi.

Ég fékk þó ekki nóg af glamúrnum í Cannes því ég mætti þangað aftur galvösk síðasta miðvikudag og eins og sannur aðdáandi þá hékk ég fyrir utan Grand Auditorium í nær tvo tíma til þess að sjá stjörnurnar úr Ocean´s 13. Var svo heppin að ná meira að segja ágætis mynd af Brad Pitt, George Clooney, Don Cheadle, Scott Caan og Carl Reiner:) Ég veit, ég er ógeðslega fræg, þið megið kannski tala við mig þegar ég kem heim aftur, sé til.

Síðasta föstudag var síðan Sangria partý á heimavistinni minni, maður gat drukkið eins mikið Sangria og maður vildi fyrir aðeins 3 evrur. Ég nýtti því tækifærið og kvaddi flesta þar sem ég fer fyrr en ég ætti og missi því af kveðjupartýinu sem verður næsta fimmtudag fyrir alla þá sem eru að fara. Kvöldið var að minnsta kosti fjörugt og auðvitað nýtti fólk sér það kostatilboð að drekka sig undir borðið fyrir 3 evrur. Það var því orðið ansi kátt í enda kvöldsins, skrítið hvað franskan verður líka betri þegar maður er aðeins í glasi.

Í dag er síðasti dagurinn minn í skólanum og síðasti dagurinn minn hér í Antibes! Nú er farið að styttast í að ég komi heim, svo ég endurtaki mig enn og aftur þá trúi ég því ekki hvað tíminn hefur liðið hratt. Satt að segja væri ég ekkert á móti því að eyða þremur mánuðum til viðbótar hér en ætli maður verði ekki að fara heim til að vinna fyrir salti í grautinn:) Kannski að ég gefi bara skít í það og fari að lifa Bóhemian lífi hér í Frakklandi. Það ætti ekki að vera svo erfitt. Ég get staðið á götuhornum og sungið gamlar íslenskar vísur meðan ég svíf um berfætt eins og vitskertur álfur, en margir nemendur hér hafa þá ímynd af Íslandi eftir að hafa fylgst með Björk okkar Guðmundsdóttir og svo auðvitað Sigurrós. Ég þarf þó ekki að örvænta enn þar sem hverdagsleikinn bíður í að minnsta kosti eina viku í viðbót þar sem ég fer til Parísar á morgun og hitti þá hina mína allra bestustu Helgu pelgu. Get ekki beðið eftir að hitta hana og skoða hvað París hefur upp á að bjóða. Allir sem fara þangað virðast heillaðir af borginni svo ég held ég verði ekki fyrir vonbrigðum. Þetta verður líklegast síðasta bloggið mitt áður en ég kem heim. Fáið bara Parísarsögurnar beint í æð þess í stað. Vona að fólk hafi getað skemmt sér aðeins yfir þessum skrifum mínum en þangað til seinna

Salut Frakkafrökenin ógurlega:)

5 ummæli:

Dalbjört sagði...

Já Harpa, skrifin þín eru stórskemmtileg. Greinilega meira um að vera á Frakklandi en Englandi. ;-)
Skemmtu þér frábærlega í París. Borgin sú er alveg ferðalagsins virði, get alveg lofað þér því.
Sjáumst heima á fróni.

Nafnlaus sagði...

Þar sem þú ert búin að læra að elda svona fínt, bíðurðu þá okkur (bókasafnsgenginu) ekki í mat ?

Nafnlaus sagði...

Já, hvernig væri það. Þú kýlir á þetta fljótlega eftir að þú kemur heim :) Kv, Svanur

Rík og glæsileg? sagði...

Slef....... Brad pitt!! fjúff :)
EN París er sko æði og njóttu þín í botn þar.
kv. Heiðdís

merly sagði...

Mig langar að deila dásamlegu vitnisburði mínum um hvernig ég kom aftur til eiginmannar míns í lífi mínu, ég vil segja fólki að það sé raunverulegt stafrænt á netinu á netinu og er öflugt og einlægt. Hann heitir DR PEACE, hann hjálpaði mér nýlega að hafa sambandið mitt sameinað með eiginmanni mínum sem varpaði mér. Þegar ég snerti DR PEACE kastaði hann ástfangelsi fyrir mig og eiginmanninn minn sem sagði að hann hefði ekkert að gera með mér, kallaði mig og bað mig. Fyrir alla sem lesa þessa grein og þarfnast hjálpar, getur DR PEACE einnig boðið upp á alls konar hjálp, svo sem að sameina hjónaband og samband, lækna alls konar sjúkdóma, málaferli, meðgöngu frásögn, við erum nú mjög ánægð með okkur sjálf. DR PEACE gerir honum grein fyrir hversu mikið við elskum og þarfnast hvert annað. Þessi maður er alvöru og góður. Hann getur einnig hjálpað þér að endurheimta brotið samband þitt. Ég hafði eiginmanninn minn aftur! Það var eins og kraftaverk! Engin hjónaband ráðgjöf og við erum að gera mjög vel í kærleika líf okkar. Hafðu samband við þennan mikla mann ef þú átt í vandræðum með sjálfbæran lausn
með tölvupósti: doctorpeacetemple@gmail.com
WhatsApp: +2348059073851
Viber: +2348059073851