miðvikudagur, 9. maí 2007

Ofeldi, sólbruni og auðvitað Eurovison

Seint blogga sumir en blogga þó. Verð að byrja á því að afsaka þessa bloggleti í mér en ég hef nú smá afsökun þar sem foreldrar mínir voru hér hjá mér í viku og síðan þeir fóru hefur veðrið bara verið svo yndislegt að ég forðast að vera innandyra (veit að mamma og pabbi gnísta tönnum þegar þau heyra þetta:)

Hápunktur síðustu tveggja vikna er auðvitað heimsókn foreldra minna. Það var ekki smá gaman að sjá þau aftur, reyndar eru bara tveir mánuðir síðan ég sá þau síðast en ég er víst meiri mömmu- og pabbastelpa en ég hélt:) Við vorum ekki smá dugleg þessa viku sem þau dvöldu hérna þar sem við brunuðum um nær alla frönsku Riveríuna, bæði ströndina og fjöllin. Það eina sem skyggði á gleðina var veðrið en það stytti varla upp allan tíman sem þau voru hérna. Þau voru í rauninni einstaklega óheppin þar sem vikan á undan hafði verið frábær og síðan þau fóru hefur ekki sést ský á himni og hitinn fer vel yfir 25 stig um miðjan daginn.

Ferðasagan í grófum dráttum felur í sér að í heila viku var þrammað um allar hliðargötur, stræti og stíga á Frönsku Riveríunni og skipti engu máli hversu ómerkilegt það var, við fórum þangað samt og tókum myndir af því:) En svo ég byrji á byrjuninni þá kom gamla settið hingað mánudaginn 30. apríl eftir langt flug frá Íslandi, London, Nice. Daginn eftir fór ég með þau í kynningarferð um heimabæina mína, Juan les Pins og Antibes. Á miðvikudaginn tókum við síðan lestina til Monaco og eyddum deginum þar í spilavítunum og í heimsókn hjá Alberti prins. Á fimmtudeginum tókum við lestina til Nice en það stytti ekki upp í fimm mínútur þann dag. Við skoðuðum hins vegar gamla bæinn sem er einn sá fallegasti og stærsti sem ég hef séð. Á föstudeginum tókum við síðan bílaleigubíl og keyrðum alla strandlengjuna frá Antibes til Saint Tropez. Við kíktum einnig við í Cannes til að heilsa upp á stjörnurnar og ég er ekki frá því að við sáum Philip Seymour Hoffman og einn annan leikara sem ég kem ekki fyrir mig núna. Á laugardeginum hélt ferðagleðin áfram þar sem við fórum til Grasse og Saint Paul de Vince. Í Grasse skoðuðum við eina elstu ilmvatnsverksmiðju Frakklands og auðvitað var shoppað ilmvötn og ilmsápur. Til að komast til Saint Paul keyrðum við allsvakalegan fjallaveg en útsýnið og skógurinn þar var engu öðru líkt. Á sunnudaginn tókum við það bara rólega og buðum svo Jelenu út að borða um kvöldið. Ferðin var því alveg frábær í alla staði og ég held að veðrið hafi átt stóran þátt í því hversu mikið við ferðuðumst. Ef það hefði verið sól og hiti þá hefðum við líklega ekki haft orku í allt þetta þramm fram og til baka. Ég er reyndar með smá áhyggjur af því að ég hafi ofreynt gömlu hjónin en þau virtust ánægð með ferðina í heild, eða kannski voru þau bara ánægð með að komast frá þrælapískaranum (moi).

Ég er leið yfir að þau séu farin en glöð yfir því að ég mun kannski aftur koma til með að passa í fötin mín núna. Þessa viku sem þau dvöldu hér var ég ofalin á hvers kyns kræsingum allan daginn út og inn. Mamma ætlaði meira að segja að halda áfram þessu ofeldi með því að fylla frystinn og ískápinn hjá mér af mat þegar þau færu. Ég náði hins vegar að koma í veg fyrir það þar sem í fyrsta lagi er takmarkað pláss sem hver fær þegar maður deilir ísskáp og frysti með 20 manns og í öðru lagi langar mig ekki að koma til Íslands lítandi út eins og franskt sætabrauð. Tala nú ekki um ef ég ætla að koma heim og mæta beint í brúðkaupið hjá Hrönn systir, ef ég klæðist ljósum litum gæti fólk mögulega tekið mig fyrir marengstertu og þá gæti ég nú hlaupið skammt með öll aukakílóin að draga mig niður.

Annars er lítið annað að frétta svo sem. Fór á ströndina í gær og afrekaði það að brenna illilega á bakinu auk þess sem ég lít út eins og karfi í framan. Ég gerði mitt besta í strandblaki en eftir að hafa þrumað boltanum í hausinn á gamalli konu og litlu barni ákvað ég að stunda íþrótt sem væri síður hættuleg öðrum. Ég tók því upp á því að synda hálfa strandlengjuna og næstum því drukkna þegar ég sá hvítan plastpoka fljóta fram hjá. Hélt að um væri að ræða árás stóreflis marglyttu, en það er stærsti ótti minn núna eftir að ég frétti að það væri lítið um að hákarlaárásir í Frakklandi.

Í kvöld er síðan kveðjupartý og afmælispartý fyrir eina stelpu á heimavistinni minni. Við ætlum því öll að panta pizzu saman og hafa það gaman, sko ég kann að ríma. Hef grun um að pizzu-hugmyndin hafi kviknað eftir að ég og Jelena elduðum síðast fyrir allt liðið. Þau eru líklegast skíthrædd um að við munum taka upp á slíkum asnaskap aftur og hafa því ákveðið að baktryggja sig með pizzutilboðum.

Annars held ég barasta að ég hafi fengið sólsting í gær, hef verið hálfslöpp í dag og ætla því að halda mig frá sólinni í einhvern tíma. Vona að allir hafi það gott heima á Íslandi. Á morgun mun ég bókað horfa á Eurovision. Vona bara að sjónvarpsræsknið á heimavistinni nái að sjónvarpa dýrðinni. Ef ekki þá hlýtur einhver pöbb að sjónvarpa þessu, trúi ekki öðru. Allavega ætla ég ekki að missa af rauða ljóninu sprangandi um sviðið í þröngum leðurbuxum. Veit að kellurnar sem eru komnar vel yfir fertugt heima munu alveg missa sig við þá sjón. Það er búið að myndast smá eurovision-stemmning hjá okkur á heimavistinni svo það verða líklegast allir með símana á lofti til að kjósa sitt land. En þangað til næst segi ég bara áfram Ísland!!!

9 ummæli:

Dalbjört sagði...

Ég var í Frakklandi fyrir tveimur árum. Við fundum hvergi stað sem lagði í að sýna forkeppnina. :S

Við komum okkur því fyrir á einni brúnni yfir Signu, innan um rónana og fíklana, og spjölluðum og biðum eftir því að mamma eins úr hópnum hringdi á nokkurra mínútna fresti til að láta okkur vita hvernig Íslandi gengi.

Þú þurftir nú ekkert að senda rigninguna frá Frakklandi hingað til Englands. Alger óþarfi.

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra í þér. Var farinn að hafa áhyggjur. ;) Kv, Svanur

Nafnlaus sagði...

Hæhæ, gaman að heyra í þér :) Ætlaði líka bara að monta mig yfir því að hafa náð öllum prófunum með 7 og 8 :D Sko ég er ekki lengur sú vitlausa í fjölskyldunni;) Hlakka annars til að fá þig heim! bæbæ :** :D
Kv. Hrafnhildur

Nafnlaus sagði...

Ég mislas fyrirsögnina og skildi orðið "ofeldi" sem "ofbeldi". Varð pínu svekktur þegar ég var búinn að lesa bloggið og fattaði að þú hafðir ekki beitt neinn ofbeldi :(

Nafnlaus sagði...

Matti, voðalega hljótum við að vera lesblind. Ég mislas nefnilega "ofeldi" sem "ofbeldi"... :-S

Nafnlaus sagði...

Ég líka, ég lýg því ekki. Ég las ofbeldi og svo var ekkert ofbeldi. Kannski að þú látir einhvern skólafélaga þinn finna til tevatnsins, svona bara fyrir okkur þessi sem lásum ofbeldi út úr þessu. Mundirðu gera það fyrir okkur? :) Kv, Svanur

Nafnlaus sagði...

Hallo allir saman

Hrafnhildur til hamingju med profnidurstodur;) Kannski ad eg lati einhvern i skolanum finna til tevatnsins, er nefnilega vel pirrud nuna tar sem eg er ad fara ad byrja a matreidslunamskeidinu og var buin ad borga tad fyrirfram = 300 evrur en nuna var dagskrain ad koma og gjaldid er bara 260 evrur. Fiflin sem vinna her vilja hins vegar ekki endurgreida mer tessar 60 evrur sem eg er ad borga auka!!! Eg aetla sko ad lata heyra i mer i dag muhahahahahahha svo kannski kemur ofbeldissaga i vikunni:)

Bestu kvedjur Harpa

Nafnlaus sagði...

Rosalega ertu klár að reikna! En já láttu nú heyra í þér stelpa, ég ætla rétt að vona að þú kunnir að mótmæla almennilega eftir dvölina hjá verkfalls- og mótmælendaþjóðinni. ;)

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ Harpa mín!!! Ohh ég er búin að vera að reyna að ná í þig!! Nú eru bara hvað rétt tæpar 2 vikur í París!!!! Get ekki beðið! :)
En allavegna það sem ég vildi segja var að hún Eva Björk okkar eignaðist STELPU í nótt :)
Held að það sé eitthvað að símanum þar sem ég næ aldrei í þig!! En vertu í bandi þegar þú sérð þetta :) Knussss Helga ....