Jæja þá flýg ég út í hinn stóra heim á morgun. Komin með smá fiðrildi í magann og er líklega búin að pakka aðeins of miklu. Þetta pökkunarferli hefur leitt mér fyrir sjónir að ég á kannski aðeins of mikið af fötum. Já ég skal viðurkenna það, ég á of mikið af fötum og þyrfti líklega að fara að henda einhverju og spara við mig í innkaupunum. Ég ætla því ekki að kaupa nein föt í Frakklandi, eða allavega ekki mikið af þeim:)
Ég veit ekki hvenær ég skrifa næst þar sem ég fer ekki út með fartölvuna og veit ekki hvernig tölvumálum er háttað í skólanum en ég lofa þó að ferðasagan mun koma, það er að segja ef ég rata á réttan áfangastað.
föstudagur, 9. mars 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
Þetta verður frábært.
Ef þau kaupir ekki nein föt í Frakklandi - þá máttu kalla mig frosk í allt sumar. ;-)
hæ hæ, gott að þú komst heil á leiðarenda, þrátt fyrir lögguna og lestarferðirnar :) hafðu það bara sem allra best og skemmtu þér vel. búin að fá lýsingu á herberginu í heimavistinni :) hver þarf svo sem að loka hurðini þegar maður er á klósettinu haha. heyri í þér seinna bæbæ
Sælt veri fólkið...
ég var beðin að koma því til skila að hún er á lífi og komin heilu og höldnu á áfangastað, tæknin er bara að svíkja hana...vonandi kemst það í lag sem fyrst
Bestu kveðjur til allra sem héldu að hún hefði týnst á leiðinni ;)
Upplýsingafulltrúin
Sæl FRAKKAFRÖKEN - jæja, þetta hafðist í gærkvöldi en þín var samt sem áður sárt saknað - bara að það sé alveg á hreinu. Hjalti talaði í rúma klukkustund og sambandið við hann var gott. KV, Svanur
Frétti að þú hefðir bara lent beint í 20 stiga hita, ekki slæmt það. Hlakka til að heyra ferðasöguna ;-)
Kv. Martha
Mig langar að deila dásamlegu vitnisburði mínum um hvernig ég kom aftur til eiginmannar míns í lífi mínu, ég vil segja fólki að það sé raunverulegt stafrænt á netinu á netinu og er öflugt og einlægt. Hann heitir DR PEACE, hann hjálpaði mér nýlega að hafa sambandið mitt sameinað með eiginmanni mínum sem varpaði mér. Þegar ég snerti DR PEACE kastaði hann ástfangelsi fyrir mig og eiginmanninn minn sem sagði að hann hefði ekkert að gera með mér, kallaði mig og bað mig. Fyrir alla sem lesa þessa grein og þarfnast hjálpar, getur DR PEACE einnig boðið upp á alls konar hjálp, svo sem að sameina hjónaband og samband, lækna alls konar sjúkdóma, málaferli, meðgöngu frásögn, við erum nú mjög ánægð með okkur sjálf. DR PEACE gerir honum grein fyrir hversu mikið við elskum og þarfnast hvert annað. Þessi maður er alvöru og góður. Hann getur einnig hjálpað þér að endurheimta brotið samband þitt. Ég hafði eiginmanninn minn aftur! Það var eins og kraftaverk! Engin hjónaband ráðgjöf og við erum að gera mjög vel í kærleika líf okkar. Hafðu samband við þennan mikla mann ef þú átt í vandræðum með sjálfbæran lausn
með tölvupósti: doctorpeacetemple@gmail.com
WhatsApp: +2348059073851
Viber: +2348059073851
Skrifa ummæli