Timinn lidur otrulega hratt, nu er eg bradum buin ad vera her i 3 vikur og mer finnst eg hafa komid i gær. Vikan hefur verid fremur roleg hja mer enda er eg buin ad vera half slopp med hita og halsbolgu. Vedrid er enn fremur leidinlegt, þad er kalt og skyjad en Frakkarnir vona ad þetta fari ad lagast enda opna allar strandbullurnar og barirnir i næstu viku en þa er ferdamannatiminn opinberlega byrjadur. Eg hef reynt ad njota þess ad fara i gongutura a stondinni i Antibes og Juan les Pins þar sem fljotlega verda allar strandirnar lokadar af sem einkastrendur hotela eda veitingastada og þa getur madur ekki lengur reikad um strandlengjuna. Strendurnar her eru nokkud hreinar og sjorinn tær svo þad verdur gaman ad flatmaga þar adur en eg fer heim i enn annad rigningarsumarid a Islandi. Reyndar var Heida systir ad reyna ad ljuga ad mer ad þvi se spad ad næsta sumar a Islandi verdi þad heitasta hingad til en eg fer nu varlega i ad trua tvi.
I skolanum i dag flutti eg fyrirlestur a fronsku um Island. Eg held eg hafi bara stadid mig agætlega þott eg hafi stundum ruglad ensku, islensku og jafnvel donsku inn i flutninginn. Allir voru ad minnsta kosti mjog ahugasamir ad frædast meira um land og þjod. Philipp fra Sviss svo og Jane fra Kenyju soru þess eid ad heimsækja Island a næstunni. Sandrine kennarinn minn er svo hrifin af Islandi ad hun kom jafnvel med forlata kort med ser af Islandi svo og mynd af Gullfoss og Blaa Loninu. Þad var mjog skemmtilegt ad fa sma innsyn i menningu og sogu annara landa fra medalljonunum sem bua þar og þad var mjog fyndid ad sja hversu mikill munur var a kynningunum. I vikunni bættust vid i bekkinn þrir nyir nemendur, tveir fra Þyskalandi og einn fra Bandarikjunum. Nemendurnir fra Þyskalandi og Sviss heldu mjog langa og itarlega fyrirlestra um landafrædi, idnad og stjornmalaastand sinna landa a medan Jane fra Kenyja einbeitti ser adallega af atvinnumalum og olikum ættbalkum sins lands. Bandarikjamadurinn var hins vegar fremur fyndinn, hann er frekar þettur a velli, en hann teiknadi upp Bandarikin og audkenndi hvern hluta landsins med þeim mat sem er helst bordadur tar. Til ad audkenna Sudurrikin skrifadi hann til dæmis med storum stofum KFC. Mer fannst þad ansi fyndid. Þegar vid spurdum hann ut i stjornmalaastand og strisrekstur Bandarikjanna virtist hann hins vegar ekki hafa mikla skodun a þeim malum. Kannski ad hinn typiski bandarikjamadur se ekki mikid ad velta þessum hlutum fyrir ser? Ella fra Astraliu er likt og flestir Astralar, tad er ad segja med iþrottadellu a hau stigi. Hun helt þvi langa rædu um þær iþrottir sem eru stundadar i Astraliu og var mikid i mun ad vid myndum skilja munin a hinum morgu oliku tegundum fotbolta sem Astralir stunda. Þad er sem sagt til einhvad sem heitir Soccer svo er til Rugby og innan þess eru þrjar deildir, þar a medal ein sem heitir Aussi rules!!
Um helgina eru margir nemendur ad kvedja skolann og halda heim a leid, þar a medal hin astralska vinkona min, Ella. Eg mun sakna hennar sart, þar sem vid byrjudum sama dag og hofum verid i sama bekk hingad til. A eftir er eg þvi ad fara i kvedjuparty a strondinni til ad kvedja Ellu og tvo adra nemendur af heimavistinni hennar. Planid er ad hittast um fjogur leytid og taka med okkur mat og drykk og skella upp almennilegri veislu. Upprunalega ætludum vid ad grilla a strondinni en þad er vist bannad svo þess i stad verdur nokkurs konar lautarferd. Hins vegar veit eg ekki hversu vel þetta mun heppnast þar sem þad byrjadi ad rigna fyrir korteri sidan og hefur enn ekki stytt upp.
I gærkvoldi heldum vid einnig kvedjuparty fyrir 3 nemendur af heimavistinni minni, Nicole fra Sviss og Ren og Reiko fra Japan. I tilefni þess akvad Ren, sem er mikill meistarakokkur, ad utbua sushi fyrir allt lidid. Allur gærdagurinn for þvi i þad ad rulla upp ymis konar hrau fiskmeti og festa þad vid hrisgrjon og þang eftir ollum kunstarinnar reglum. Ren tok þetta mjog alvarlega og tok okkur oll i einkakennslu til ad vera viss um ad vid kloppudum rullunum akkurat a rettan hatt. Hann var ekki alveg nogu anægdur med arangur minn tar sem honum fannst eg taka adeins of fast a rullunum og ekki klappa þeim nogu blidlega þegar eg setti þær nidur. Um kvoldid settum vid sidan upp langbord uti a verondinni og bordudum gomsætt sushi asamt serstakri japanskri supu og svo audvitad var þessu skolad nidur med hrisgrjona saki og sma fronsku raudvini. Eg verd nu ad vidurkenna ad eg helt eg myndi ekki geta bordad hraan fisk en þegar allt kom til alls þa var tetta bara fremur gomsætt, serstaklega ef madur dyfdi rullunum i sosuna sem fylgdi.
En eg ætla ekki ad hafa postinn lengri ad tessu sinni, verd vist ad fara ad skella mer i regngallann og skunda a strondina;)
föstudagur, 30. mars 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
he he ég hefði viljað vera fluga á vegg þegar þú talaðir um Ísland... segji ekkert meira um það;)
Það er rigning hér líka. Vonandi að rigningin klárist bara fyrir sumarið! :D
Þvílikt ævintýri hjá þér, dauðöfunda þig. Langar bara að segja skilið við allt saman og fara að skoða franska smábæi og greinilega hverja einustu krá líkt og þú gerir. Þú hlýtur nú að vera smá sleip í frönsku fyrst þú getur sagt frá Íslandi. kveðja Hrönn.
Þú stendur þig greinilega betur í Íslandskynningunni en ég. Allir sem reyna að tala við mig um Ísland hrökklast burt með skelfingarsvip. Ég óttast meira að segja að ég hafi óviljandi og algerlega óvart náð að telja tveimur enskum stelpum hughvarf sem voru að spá í að koma til Íslands sem Erasmus-nemar.
Skrifa ummæli