Nu er kominn manudagur enn og aftur, timinn lidur hratt a gervihnattaold. Helgin var fin, for i kvedjuparty a fostudaginn og til heidurs Ellu kiktum vid a Astralskan pobb adur en ferdinni var heitid a vinsælasta stad bæjarins, The gay bar. The gay bar ber nafn med rettu þar sem hann er heitasti skemmtistadur samkynhneigdra i Antibes. En þar sem tonlistin er god og dansgolfid stort þa villist þar inn stor hopur af gagnkynhneigdu folki um hverja helgi. Skemmtunin a Gay bar var þo med adeins odru snidi þessa helgi þar sem stuttu eftir midnætti spruttu allt i einu upp kvenkynsstripparar sem donsudu af miklum krafti a afmælisfotunum einum fata i þartilgerdum burum. A þeim timapunkti var augljost hverjir voru samkynhneigdir og hverjir ekki þar sem augun stodu a stilkum hja gagnkynhneigda karlpeninginum. Kannski ad þetta hafi verid snjallt bragd hja eigendum stadarins til ad hjalpa þeim samkynhneigdu ad finna hvor adra i þessum hafsjo af folki. Tar sem eg filadi mig ekki alveg ad dansa magarena vid undirleik silikonbrjosta og slefandi karlmanna stytti eg kvoldid adeins meira en upphaflega var gert rad fyrir en kvoldid var þo gott allt i allt.
A laugardeginum vard heimavistin min sidan fyrir innras gargandi og bolottra unglinga fra Tyskalandi og Italiu. Vegna þessa turfti stærsti hluti þeirra nemenda sem eru ad vinna og i skola ad flytja fra Castel Arabel i adra heimavist. Vid erum þvi adeins atta eftir af upprunalega hopnum og gargandi hormonar rada rikjum i kastalanum. Greyid krakkarnir eru ad vonum spenntir ad vera ekki i umsjon foreldra sinna og þar ad auki i samblandi vid hitt kynid svo umhverfi heimavistarinnar minnir nuna helst a heimildamynd um mokunarvenjur frumstædra spendyra. Slik er spennan ad þau finna sig knuinn til ad syngja haum romi a sinu modurmali og dansa vid furdulega leidinlega teknotonlist hvenær sem er solarhrings. Tad er einkar oheppilegt fyrir gamlingja eins og mig sem er ad reyna ad fara ad sofa i kringum midnætti. Eg var svo ekki anægd i morgun þegar eg vaknadi upp vid ad simi var ad hringja i næsta herbergi vid mig klukkan half sjo og engum datt i hug ad svara. A slaginu sjo mættu sidan umsjonarmenn hopanna og bordu a allar dyr i heimavistinni an tillits til þess hvort dyrnar tilheyrdu þeirra nemendum eda ekki!! Eg sver þad ad eg rif upp hurdina og hendi i þau nokkrum vel voldnum ordum a minu modurmali ef þeim dettur i hug ad gera þetta aftur a morgun.
Vegna innrasar gelgjanna hef eg eytt miklum tima i þeirri heimavist sem stærsti hluti nemendanna var fluttur til. Eg myndi þo ekki vilja bua þar sjalf þar sem adstadan er ekki svo god og nemendurnir mega sætta sig vid ad vera fjorir saman i litlum herbergjum og deila klosettadstodu. Kannski ad eg komist þo a adra skodun eftir ad hafa lifad i 2 vikur med litlu skrimslunum! Vid bordudum oll saman a nyju heimavistinni i gær alveg frabæra maltid! Eg gerdi mer ekki grein fyrir hversu mikid eg saknadi þess ad fa almennilega heimagerda maltid med kjuklingi, salati, kartoflum og alles. Eg hef neytt fremur fabreytts matarædis sidan eg kom hingad eins og flestir vita. Folk getur hins vegar glatt sig a tvi ad pasta og braud er a undanhaldi hja mer þar sem eg fann morgunkorn sem eg er alveg brjalud i svo nuna er bara cheerios a morgnana og cheerios a kvoldin:0)
Eg fekk svo frabærar frettir i gær þar sem foreldrar minir eru ad hugsa um ad koma i eina viku og heimsækja mig i byrjun mai. Tad væri alveg frabært þar sem þad er svo margt fallegt ad sja her og nog um ad vera. Eina sem skyggir a gledina er hvad eg er enn dapurlega leleg i fronsku. Tau halda orugglega ad eg hafi bara setid a rassinum med bjor i einni hendinni og cheerios i hinni þann tima sem eg hef verid her. Tad eru nokkur tilvik þar sem eg hef serstaklega fundid fyrir þvi hvad þad er oþægilegt ad vera mallaus i okunnu landi, tvisvar tegar eg var spurd til vegar af villtum frokkum, einu sinni þegar gomul fronsk kona var ad bidja mig um ad teygja mig i kal fyrir sig i supermarkadinum og einu sinni þegar fullordin karlmadur sat einn a bekk i gardi sem eg labba fram hja daglega og gret svo sart. I þvi tilviki stod eg bara eins og staur og og stardi a hann þar sem eg vissi ekkert hvernig eg atti ad spurja hann hvad væri ad og hvad þa ad eg hefdi skilid þad sem var ad greyid manninum. I dag vorum vid sidan med frafallakennara þar sem kennarinn minn er veikur. Frafallakennarinn er kona a sextugsaldri en hun kemur af griskum ættum og er greinilega mjog stolt af þvi þar sem þad var med þvi fyrsta sem hun tilkynnti okkur, hvada gagn vid attum ad hafa af þeim upplysingum veit eg ekki. Hun hefur einnig greinilega mjog gaman af þvi ad tala og taladi hun svo hratt ad eg heyrdi bara ogreinilegt humm i fjarska. Hun reyndi nokkrum sinnum ad na sambandi vid mig en eg sat bara glaseygd og stardi a kellinguna an þess ad koma upp ordi. Ad lokum held eg ad hun hafi verid komin a þa skodun ad eg væri halfgerdur einfeldingur. Eg var jafnvel ad spa i ad fullkomna imyndina og gera mer upp slef sem myndi sidan leka hægt ut a kinn. Ad lokum fekk eg alveg nog og sagdi kannski fremur harkalega vid hana, þegar hun spurdi mig enn annarar spurningar sem eg skildi ekki, ad hun taladi allt of hratt og þad væri þvi omogulegt fyrir mig ad skilja ord af þvi sem hun sagdi. Mer til furdu þa uppgotvadi eg hins vegar eftir a ad eg hafdi nad ad stynja þessu upp a fronsku svo kannski leynist einhver vitneskja þarna undir nidri. Kannski ad eg þurfi bara simalandi, pirrandi kellur til ad kveikja a rofanum?
mánudagur, 2. apríl 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
6 ummæli:
jæja gamla kerling, við vitum öll að þú ert alla vega 40 árum á undan í aldri og hefur alltaf verið en ég manna þig að fara bara og taka teknósporin með þessum viltu og gröðu unglömbum sem hafa hertekið kastalann þinn. Hafðu það sem allra best yfir páskanna (hringi nú samt í þig og læt vita hvað spákellan segir hehe)
Fráfallakennara? Er það nú ekki meira eins og hinn kennarinn hafi geispað golunni? :)
Annars væri það bara snilld að sjá þig taka slefið á þetta!
En mér líst afar vel á að þú sért farin að krúsa gaybarina - langmesta fjörið á þeim stöðum.
En þá að þessu sem þú skrifaðir:
"Kannski ad eg þurfi bara simalandi, pirrandi kellur til ad kveikja a rofanum?"
Varst þú ekki örugglega að vinna á Bókasafni Hafnarfjarðar! ;)
Kv, Svanur
Sammála síðasta ræðumanni!
Og "fráfallakennari" er mjög skemmtilegt orð. ;-)
Kv. Martha
Fráfallakennari er yndislegt orð, ef maður er ekki kennarinn sem fráfallakennarinn leysir af... ;-)
Já, stundum síast tungumálin inn í heilann á óskiljanlegan hátt, án þess að maður taki eftir því. Af hverju er ekki allur lærdómur þannig? Hvílíkur munur það yrði.
Kveðja.
hæ hæ skvísa
Æðisleg saga. Vildi að ég væri þarna hjá þér :( Langar bara mest að fara ti suður-Frakklands í frí, elska þennan stað...Gaman að mamma þín og pabbi ætli að kíkja á þig, þú getur alla veganna pantað rauðvín handa þeim :) Bólar ekkert á vínekrubóndanum??? Ég bíð spennt eftir heimboði :)
Bestu kveðjur úr vorinu á Íslandi
20° hiti í gær (segi ekkert hvar á landinu það var)
Hallo allir saman
Ja frafallakennari er kannski ekki alveg retta ordid he he. Kennarinn minn er vist bara veikur en ekki fallinn fra, sem betur fer;0
Vardandi gay barinn ta eru tad ord ad sonnu Svanur, mesta studid er tar:)
Med heimbodid ta vil eg bara segja ad allir eru velkomnir ad kikja a mig hingad! Bara panta flug og koma.
Vinekrubondinn er enn i felum. Veit ekki hvort hann muni nokkurn timann finna mig. Tad er bara ad bida og vona he he.
Skrifa ummæli